Vikuáætlun 24. - 28. nóvember.

21.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


24. - 28.nóvember


Viðfangsefni vikunnar:


Íslenska: Byrjendalæsi; unnið með stafina Gg og Öö. Í þessari viku vinnum við með bókina Vetrardagur eftir M. Christina Butler


Stærðfræði: Sproti 1b; nemendabók bls. 34 - 39 og aukabækur, plús og mínus.


Náttúrufræði: Veðurathugun


Lífsleikni:  Zippý, kafli 2.2, að hlusta af athygli.
Tónmennt Hvínandi vindur og Krummi krúnkar úti..


Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann.
Sögubókin (val): Stafirnir Gg og Öö.


Skrifa sögu þar sem stafirnir  Gg og Öö eru notaðir, teikna og lita mynd við söguna .

                      Skila mánudagur  1. desember


Bestu kveðjur


Helga og Árný