Vikuáætlun 24. - 28. febrúar

28.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur


24-28. febrúar 2014



Viðfangsefni vikunnar er:


Byrjendalæsi:  Við klárum áhugasviðsverkefnið.  Að því loknu vinnum við verkefni út frá bókinni Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað   eftir Sigríði Arnardóttur.  Einnig verður unnið í Ritrún og skrift.


StærðfræðiSproti 3b bls. 39-44 og æfingahefti.


Upplýsingatækni: Leita að upplýsingum um tröll.  


Útivist: höldum enn í vonina um renniferð en annars leikir úti.


Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.










Heimavinna:   Lesi heima minnst 5x yfir vikuna en best ef þau læsu 7x.  



 


Á mánudaginn er bolludagur og hefjum við skóladaginn með grímuballi.  Krakkarnir koma í grímubúningum í skólann og verður ekki skylda að fara í sturtu eftir leikfimi svo andlitsfarði skemmist ekki.  Þann dag er í boði að koma með hvers kyns bollur í nesti.  Í lok dags ætlum við að lyfta okkur enn frekar upp með spilastund og er krökkunum velkomið að koma með spil í skólann ef þau vilja.


Á þriðjudaginn er svo starfsdagur kennara og nemendur því í fríi til að borða nammið sitt ;0)


Bestu kveðjur                                 
Magnúsína og Maja