Vikuáætlun 23. - 27. mars
20.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun
3. bekkur
23. – 27. mars
Byrjendalæsi: Æfingar fyrir árshátíð. Einnig byrjum við á nýju verkefni sem mun halda áfram eftir páska, það er samfélagsfræðiverkefni sem tengist byrjendalæsi og fjallar um sveitina.
Stærðfræði: Við munum rifja upp almennan reikning, plús, mínus og námundun, stefnum niður bls. 17 í Sprota 3b. Ásamt aukabókum.
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Upplýsingar um árshátíðina hafið þið fengið í pósti frá skólastjóra. Mötuneyti verður alla dagana.
Á miðvikudaginn sýnum við bara (horfum ekki), nemendur ættu því að vera búnir þann daginn um kl. 17:40.
Á fimmtudeginum horfum við á sýninguna og ættum þá að vera búin um kl. 18:30.
Báða þessa daga er aftur mæting í bekkjarstofu kl. 17:30, alls ekki seinna því við þurfum tíma til að farða og græja okkur.
Á föstudaginn eftir mat ætlum við að hafa það huggulegt saman og mega krakkarnir gjarnan koma með spil að heiman ef þau vilja.
Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína








