Vikuáætlun 23. - 27. febrúar 2015

23.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Íslenska:          Læsi til náms – verkefni ásamt vinnubókum. Ljóðið Íslands minni (Þið þekkið fold) eftir Jónas Hallgrímsson lært utanbókar.


 


Stærðfræði:         Stika 1b – Nemendabók, bls. 13-17  Mælingar, ásamt æfingahefti.


 


Samfélagsfræði:    Víkingaöld árin 800-1050 bls. 3-7, Fornleifar. Fjallkonan, hringekja.


 


Náttúrufræði:       Lífríkið í sjó


 


Enska:             Days, Months and Seasons.


 


Lífsleikni:              Uppbyggingarstefnan og samskipti. Við fáum líka námskeið í skyndihjálp sem átti að vera í síðustu viku.


 


Tilkynningar:



  • Nú skiptum við yfir í söguhluta samfélagsfræðinnar þar sem landafræði Íslands er lokið. Við tekur víkingaöldin með alls kyns skemmtilegtum verkefnum.

  • Skólinn vinnur að verkefninu Læsi til náms undir leiðsögn Háskólans á Akureyri. Á næstu vikum munum við vinna verkefni frá þeim í íslenskunni, ásamt því að vinna í vinnubókum.

  • Við erum nú farin að nota iPadinn mjög mikið í alls kyns vinnu og gengur það mjög vel. Nemendur hafa allir aðgang að öllum kennslubókum inni á iPadnum auk þess sem þeir geta skilað okkur ýmsum verkefnum í gegnum smáforritið showbie. Þeir sem eiga iPad heima geta farið inn á forritið þar og sýnt foreldrum bæði verkefnin og bækurnar. Best er að fara í gegnum google aðgang nemenda, sem þeir þekkja.


 



 


Heimanám: Daglegur lestur.


 



Bestu kveðjur,


Auður og Helga