Vikuáætlun 22. - 26. september
19.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkjar
22. – 26. september
Byrjendalæsi: Vinnum áfram með bókina Litlu Landnemarnir eftir Iðunni Steinsdóttur. Við munum vinna með samheiti, andheiti, samsett orð, lestur, ritun og stafsetningu. Einnig kynnum við okkur hvernig víkingarnir námu land.
Stærðfræði: Við ætlum að gefa okkur aðeins meiri tíma til að klára, í Sprota 3a, niður bls.39 í nemendabók, ásamt æfingahefti og húrrahefti (hefti með lesdæmum).
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Á þriðjudaginn kemur Möguleikhúsið í skólann og sýnir okkur leikritið Langafi prakkari.
Eru ekki örugglega allir búnir að kemba???
Haustfundur í 3. bekk verður miðvikudaginn 24. september kl.8:00. Vonumst til að sjá sem flesta.
Hraðlestrarpróf verða tekin þessa viku.
Kveðja,
Jón Heimir og Magnúsína








