Vikuáætlun 21. - 25. maí
18.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
21.– 25. maí 2012
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Skriftarpróf á mánudag. Lesskilningspróf á þriðjudag. Orð af orði – fiskur. Vinnubækur.
Stærðfræði: Upprifjun, stærðfræðipróf á miðvikudag. Ý msar stærðfræðibækur.
Náttúrufræði: Heimsókn til Íslandssögu og Klofnings á Suðurreyri. Fjöruferð.
Samfélagsfræði: Heimsókn til Íslandssögu og Klofnings á Suðurreyri.
Tákn með tali: Upprifjun.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt.
|
Heimavinna: Lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku. |
Nú er búið að loka sundlauginni vegna viðhalds svo að ekki þarf að koma með sundföt á fimmtudag. 1. KÖ á sundtíma kl. 8 og eiga að hitta Atla fyrir framan sundhöll tilbúin í útiveru.
Við tökum þrjú próf í þessari viku, sjá nánar hér að ofan.
Á fimmtudaginn ætlum við í fjöruferð. Allir að vera í stígvélum og þeir sem eru í dægradvöl ættu að hafa með sér aukaföt til öryggis ef einhver tæki nú sundsprett ;0)
Á föstudaginn höldum við til Suðureyrar. Fyrirtækin Íslandssaga og Klofningur hafa boðið okkur í skoðunarferð til sín. Þar verðum við allan morguninn. Þennan dag þarf einungis að hafa með sér bakpoka með nesti. Þeir sem eru skráðir í mötuneyti fá hádegisnesti frá þeim aðrir koma með tvöfalt nesti.
Bestu kveðjur Kristín og Magnúsína








