Vikuáætlun 21. - 25. janúar 2013
18.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
21. – 25. janúar 2013
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Bókin Ísland áður fyrr: Fjölskyldan eftir Halldóru Kristinsdóttur og Kristínu Á. Þorsteinsdóttur. Ýmis verkefni unnin með textanum úr bókinni.
Stærðfræði: Sproti 2b nemendabók bls. 8 - 13 ásamt aukabókum.
Kristinfræði: Regnboginn bls. 64 – 66 Góði hirðirinn. Dæmisögur.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna. 5 – orðabók 3 sinnum yfir vikuna. 2 blaðsíður í stærðfræðibók. Íslenska: Segðu frá vinnu foreldra þinna, skrifaðu um hvað þau gera og teiknaðu mynd. |
Munið að kemba reglulega á meðan við erum að komast fyrir lúsina í skólanum.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








