Vikuáætlun 20. - 24. maí
17.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkjar
20. – 24. maí
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Unnið með gömul verkefni frá í vetur ásamt ýmsum bókum. Skriftarpróf og lesskilningspróf verða í vikunni.
Stærðfræði: Sproti 2b nemendabók, bókin kláruð. Stærðfræðipróf.
Túarbragðafræði: Trúarbrögðin okkar: Hópverkefni kláruð og kynnt.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna 5 – orðabók 3 sinnum yfir vikuna. |
Mánudaginn 20. maí er annar í hvítasunnu og því frí í skólanum.
Á þriðjudag verður skriftarpróf.
Stærðfræðiprófið verður á miðvikudag og sendum við Sprotabækur heim á þriðjudag ef foreldrar vilja líta yfir efnið með krökkunum. Við bendum þá sérstaklega á brúnu prófablaðsíðurnar.
Á fimmtudeginum verður lesskilningspróf.
Föstudaginn 24. maí er svo leikjadagur. Þann dag mæta börnin með bakpoka með nesti og klædd til að vera úti allan daginn. Mæting er kl. 8:00 en skóla lýkur kl. 12:00.Mötuneyti verður á sínum stað.
Dægradvöl opnar kl. 12:00.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








