Vikuáætlun 20. - 24. febrúar

17.02.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Vikuáætlun 1. bekkur



20. - 24. febrúar  2012




Viðfangsefni vikunnar er:



Íslenska: Stafainnlögn Uu.  Það er leikur að læra, lesbók bls. 62 - 65. Það er leikur að læra vinnubók 2 bls. 12 - 13. Skriftaræfingar.  



Stærðfræði: Spoti 1b bls. 52 – 59.  Aukabækur.



Náttúrufræði: Vatn – Hvað getur ferðast á vatni?



Samfélagsfræði: Leyniboxið.  Vinir Zippý´s.  Uppbygging - hegðunarbíllinn.



Tákn með tali: Vikudagarnir.



Auk þessa fara nemendur í sund, leikfimi, útivist, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt og heimilisfræði.















Heimavinna: Uu saga í sögubók og 2 blaðsíður (merktar) í stærðfræðibók. 



Sögubókin verður í töskunni á mánudag og henni á að skila miðvikudaginn 22. febrúar.  



Sproti æfingahefti verður í töskunni á miðvikudag og honum á að skila föstudaginn 24. febrúar.  Í stærðfræðibókina má vinna meira ef vill.



Lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku.




 



Á mánudaginn er bolludagur og mega börnin þá koma með bollur í morgunnesti.  Þann dag mæta börnin í grímubúningi og förum við á grímuball.  Athugið að ekki er leyfilegt að koma með vopn á grímuballið þó að það fylgi búningnum.   Þessi dagur er þó venjulegur skóladagur að öðru leiti, mæta með skólatösku, leikfimin verður á sínum stað ásamt frímínútum.



Á þriðjudaginn (sprengidag) er starfsdagur kennara og eru börnin í fríi þann dag.




                      Bestu kveðjur  



                   Kristín og Magnúsína