Vikuáætlun 19. - 23. maí

16.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


19.-23. maí


 


Vorskipulag


 


 20.- 23. maí :hraðletrarpróf


 


20. maíSkriftarpróf, allir þurfa að hafa vel yddaðan blýant og strokleður í veskinu.


 


21. maí er fyrirhuguð vinnustöðvun hjá kennurum.  Ef ekki verður búið að semja fyrir þann tíma verður ekki skóli þann daginn.


 


22. maí: Lesskilningspróf. Allir að muna eftir trélitum; gulur, rauður, grænn, blár og svartur og auðvitað líka blýant og strokleðu r. 


Danssýning: Fimmtudaginn 22. maí er danssýning í dansstofunni. 1. KO kl.9:40 og 1. HA kl. 10:20 Allir foreldrar og aðrir vinir og ættingjar velkomnir að kíkja á afrakstur vetrarins .


 


 


23. maí Heimsókn á Suðureyri.  Íslandssaga og Klofningur hafa í nokkur ár boðið 1. bekk í heimsókn til Suðureyrar. Þá fá krakkarnir að skoða fiskvinnsluna og fleira sem tengist fiskum. Brottför með rútu frá skólanum kl. 8:15 og því nauðsynlegt að allir mæti kl. 8 eins og venjulega. Allir þurfa að vera vel skóaðir og klæddir eftir veðri. Skólataskan má vera heima og morgunnesti verður í boði hjá gestgjöfum okkar. Við komum heim í skólann um 11.30.  Þeir sem ekki eru í mötuneyti koma með hádegisnesti.  


 


26. maí: Stærðfræðipróf


 


27. maí: er fyrirhuguð vinnustöðvun hjá kennurum.  Ef ekki verður búið að semja fyrir þann tíma verður ekki skóli þann daginn.


 


28. maí. Vorverkadagur með 8. bekk. Allir klæddir eftir veðri með nesti í léttum bakpoka.


 


29. maí. Uppstigningardagur. Frí í skólanum.


 


30. maí. Leikjadagur. Allir klæddir eftir veðri og nesti í léttum bakpoka.


 


2. júní.  Skemmti- og grillferð í Stórurð.  Allir klæddir eftir veðri og nesti í léttum bakpoka.


 


3. jún í. Síðasti kennsludagur fyrir sumarfrí.  Frágangur í stofu (skólataskan þarf að koma með) og Heimsókn á bæjarbókasafn.


 


5. júní. Foreldraviðtöl nánar auglýst síðar


 


 


 


 


Viðfangsefni vikunnar:


Íslenska: Byrjendalæsi; Tóta og tíminn, samþætt klukkuvinnu í stærðfræði framhaldi frá síðustu viku.
Stærðfræði: Sproti 2a bls. Sproti 2a 116-128. Upprifjun


Náttúrufræði: Fiskaþema
Samfélagsfræði: Komdu og skoðaðu land og þjóð, Lífsleikni: Vinir Zippýs, 
Tónmennt: Vorlög og Tveir vinir
Myndmennt: Fiskaþema


Auk þess fara þau í; útivist, heimilisfræði, handavinnu, smíðar, dans,  sund og úti-leikfimi.


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.


Helga og Kristín