Vikuáætlun 19. - 23. janúar
16.01.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkjar
19. – 23. jan.
Byrjendalæsi: Við klárum nokkur verkefni úr Gilitrutt. Að öðru leiti verður vikan helguð ritun. Við skoðum hvernig bókarkápur eru, hvaða upplýsingar er þar að finna. Gerum beinagrind af sögu og búum svo til sögu í bókarformi. Ef vel gengur verður útgáfugleði á föstudaginn þar sem nemendur lesa verk sín.
Stærðfræði: Við höldum áfram með frádrátt í uppsettum dæmum. Á föstudaginn verður smá könnun, við sendum heim á mánudaginn upplýsingar um hvað verður á þessari könnun.
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Í þessari viku tökum við næsta hraðlestrarpróf og lesskilningskönnun.
Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína








