Vikuáætlun 18. - 22. nóvember.
14.11.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
18. - 22. nóvember
Óskum eftir gömlum tímaritum, bæklingum og blöðum í
skólann til að nota í ýmsa vinnu t.d. klippa út myndir, stafi, orð og greinar. Ef slíkt leynist heima væri það vel þegið hér í skólanum.
Dagur íslenskrar tungu er 16. nóvember og af því tilefni verðu næsta vika helguð Þórarni Eldjárn sem er skáld vetrarins hjá GÍ.
Viðfangsefni vikunnar
Íslenska:
Byrjendalæsi; Æ og K
Unnið verður með ljóðið Bækur eftir Þórarinn Eldjárn.
Stærðfræði:
Sproti 1b; nemendabók bls. 34 - 39 og aukabækur. Plús og mínus.
Náttúrufræði/ Samfélagsfræði: Hvernig eru bækur búnar til?
Lífsleikni: Heimsókn á Bæjarbókasafn
Tónmennt: Lestrarlagið og Á íslensku má alltaf finna svar.
Myndmennt: Bækur
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist.
Heimanám :
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Sögubókin: Stafirnir Æ og K
Skrifa sögu þar sem stafirnir Æ og K
eru notaðir, teikna og lita mynd við
söguna .
Skila sögubók mánudaginn 25. nóvember.
Bestu kveðjur
Helga og Kristín








