Vikuáætlun 18. - 22. maí
15.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun
3. bekkur
18. – 22. maí
Byrjendalæsi: Höldum áfram með verkefnið um hringrásir náttúrunnar. Einnig vinnum við ýmis verkefni tengd þessu efni. Unnið verður með orð, lestur, lesskilning, ritun og skrift.
Stærðfræði: Upprifjun og próf.
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund, útivist og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Á þriðjudaginn verður danssýning hjá 3.MH hóp, þá er foreldrum þeirra boðið að koma og horfa á í dansi, tíminn er kl. 8:40. Á fimmtudaginn er svo foreldrum 3. JH hóp boðið að horfa á í danstíma, kl. 12:20.
Á mánudaginn verður lesskilningspróf og á fimmtudaginn verður stærðfræðipróf. Krakkarnir fóru með Sprota bókina heim í dag til að hægt sé að undirbúa sig fyrir prófið með hliðsjón af gátlista.
Kveðja,
Jón Heimir og Magnúsína








