Vikuáætlun 18. - 22. febrúar
15.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur
5 orðabókin
Til að efla lesskilning er gott að nemendur velji orð sem þeim finnast skrítin eða orð sem þau skilja ekki í heimalestri og skrá þau í 5 orðabókina. Reyna síðan að finna út hvað þau þýða.
Krakkarnir í 4. bekk eru að fara að vinna verkefni náttúrufræði sem útbúið er úr nælonsokkum. Okkur vantar nokkra gamla og ónýta nælonsokka eða nælonsokkabuxur í skólann, ef einhver lumar á slíku væri það vel þegið. Það má alveg vera lykkjuföll og göt, við notum bara hluta af þeim.
Viðfangsefni vikunnar:
Íslenska: Ýmis verkefni tengd Byrjendalæsi, unnið verður með texta bókarinnar Eplin hans Peabodys eftir Madonnu, málfræði, stafsetning og ritun.
Stærðfræði: Sproti 4B bls. 28 - 38 margföldun og deiling.
Samfélagsfræði: Líf í köldu landi
Tónmennt: Vetralög
Enska: animals
Lífsleikni: Bekkjarfundur og Eplin hans Peabodys
Náttúrufræði: Plöntur á vetrum.
Heimanám:
Stærðfræði: Margföldunar og deilingar blað
Íslenska: Skinna 2 bls.
Lesa heima daglega og skrifa í 5 orðabókina a.m.k. 3 sinnum í viku
Kveðja Helga








