Vikuáætlun 17. - 21. september

13.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur


17. – 21. september


Á mánudaginn hefst lestrarlota sem stendur yfir í tvær vikur og munum við lesa í 15 mínútur á dag í hljóði.


 


Penni: Nota þarf bláan eða svartan penna (ekki túss) í samræmd prófunum og því þurfa allir að koma með 1 stk  penna í skólann í næstu viku.


 



Samræmd próf  


Fimmtudaginn 20.september verður samræmt próf í íslensku og föstudaginn 21.september í stærðfræði hjá 4. bekk.


Prófin hefjast klukkan 9:00 og standa til 11:20 (hlé frá 10:00-10:20) í bekkjarstofu okkar.  Nemendur þurfa að vera mættir a.m.k 20 mínútum fyrir próf (kl. 8.40).


Mikilvægt er að huga mjög vel að svefni og næringu þessa daga og allir þurfa að koma með nesti til að borða í hléinu kl. 10.


Að prófi loknu kl. 11.20 mega allir fara heim en þeir sem eru í mötuneyti geta borðað strax eftir prófið og hægt er að fá að bíða eftir strætó í skólanum.


Miðvikudaginn 19. september verður lesskimunarhluti íslenskuprófsins lagður fyrir á venjulegum skólatíma.



 



  • Átaksverkefnið „Göngum í skólann“ hófst hjá okkur mánudaginn 10.september.  Ég hvet því alla sem geta  til að vera duglega að ganga eða hjóla í skólann (ekki er um keppni eða skráningu að ræða).


  • Á skólavefnum er hægt að æfa sig fyrir samræmdu prófin og er slóðin    http://skolavefurinn.is/_opid/_valmynd/profasidan/index.html


 


Viðfangsefni vikunnar er:


Íslenska: samræmt próf og æfingar fyrir það.


Stærðfræði: samræmt próf og æfing fyrir það.


Enska: fellur niður vegna samræmdra prófa.


Náttúrufræði:  Vinna úr vettvangsferðinni sem farin var 12. september. 


Kristinfræði: fellur niður vegna samræmdra prófa.


Samfélagsfræði: Komdu og skoðaðu sögu mannkyns bls. 2 – 3 frh.


Upplýsingatækni: Stærðfræðileikir á netinu, Sproti í Noregi.


 


Heimanám:


Íslenska:  Ritun, muna að gefa sögupersónum og sögunni nafn, um hver en sagan?, hvar gerist hún, hvað gerist? , hvað gerist svo ? og hvernig endar hún? 


 


Stærðfræði:  Æfa sig á gömlu prófi með vasareikni. Muna að skrá útreikninga.    


 


5-orða bók.


Nemendur þurfa að lesa heima a.m.k.  5 sinnum í viku.


5 orðabók a.m.k. 3sinnum í viku . 


 


Kveðja Helga