Vikuáætlun 17. - 21. nóv.
14.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
17. - 21.nóvember
Óskum eftir gömlum tímaritum, bæklingum og blöðum í skólann til að nota í ýmsa vinnu t.d. klippa út myndir, stafi, orð og greinar. Ef slíkt leynist heima væri það vel þegið hér í skólanum.
Viðfangsefni vikunnar:
Íslenska: Byrjendalæsi; unnið með stafina Ææ og Kk. Í þessari viku vinnum við með ljóðið Bækur eftir Þórarinn Eldjárn.
Stærðfræði: Sproti 1b; nemendabók bls. 29 - 37 og aukabækur, plús og mínus..
Lífsleikni: Zippý, kafli 2.1, tjáning og boðskipti.
Tónmennt
Vikudagarnir og Það er skemmtilegast að leika sér þegar allir eru með.
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist
Heimanám :
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann.
Sögubókin (val): Stafirnir Ææ
og Kk.
Skrifa sögu þar sem stafirnir Ææ og Kk
eru notaðir, teikna og lita mynd við söguna .
Skila mánudagur 24. nóvember
Bestu kveðjur
Helga og Árný








