Vikuáætlun 17. - 20. desember
13.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur
17. – 20. desember
Þá er komið að síðustu vikunni fyrir jólafrí en það hefst
kl. 12 fimmtudaginn 20. desember. Kennsla hefst aftur
föstudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
Mánudagur 17. og þriðjudagur 18. desember er kennsla samkvæmt stundaskrá, jólaföndur og jólavinna munu einkenna þessa daga.
Miðvikudaginn 19. desember er skreytingadagur.
Þennan dag munum við skreyta skólann, ganga frá jólaföndri og undirbúa litlu jólin.
Skóli er frá kl. 8:00 - 12:00 og síðasti dagur mötuneytis fyrir jól.
Strætó fer heim eftir skóla kl. 12.15.
Fimmtudaginn 20. desember eru svo litlu jólin.
Þá er skólatími frá kl. 9:00 - 12:00 og fer strætó kl. 8:40 úr firðinum
og Hnífsdal og aftur heim kl. 12.15.
Á litlu jólin mæta allir prúðbúnir í bekkjarstofuna þar sem við munum eiga góða stund saman,
við ætlum að vera í jólaskapi og spila litlu-jólabingó, hlusta á jólasögu, borða jólasmákökur
og drekka gos eða safa, syngja jólalög, skiptast á jólapökkum og endum á jólaballi.
Jóla hvað?
Þennan dag má koma með jólasmákökur og gos/safa í nesti.
Sú hefð hefur myndast í skólanum að á litlu jólunum skiptast nemendur á jólapökkum.
Pakkarnir mega ekki kosta meira en 500 kr. og þurfa að henta bæði strákum og stelpum.
Koma þarf með 1 stk. pakka í skólann í síðasta lagi mánudaginn 17. desember.
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Jólavinna með kvæði Jóhannesar úr Kötlum.
Stærðfræði: Jólastærðfræði.
Samfélagsfræði: Fæðing Jesú.
Tónmennt: Jólalög
Jólaföndur, jólakort, jólastuð, jólasöngur, jólagjafir, jóla ...
Heimanám:
Lesa heima daglega líka í jólafríinu
Mínar bestu óskir um gleðileg jól.
Kveðja Helga








