Vikuáætlun 16. - 20. mars 2015
13.03.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Læsi til náms – verkefni ásamt vinnubókum.
Stærðfræði: Stika 1b – Nemendabók 6. kafli, Almenn brot. Þeir sem eiga eftir að taka könnun úr kaflanum um mælingar, gera það á mánudag.
Samfélagsfræði: Víkingaöld árin 800-1050, kortaverkefni og hugtakakort.
Náttúrufræði: Verkefni tengd sólmyrkva.
Enska: Animals and pets.
Lífsleikni: Árshátíðarundirbúningur.
Tilkynningar:
- Nú styttist í árshátíðina sem haldin verður 25. og 26. mars n.k. Þeir sem vita til þess að þeir verði ekki í skólanum þá daga eða dagana á undan, eru vinsamlegast beðnir um að láta okkur vita sem fyrst.
Við munum sýna leikrit um Djáknann á Myrká og má sjá meðfylgjandi mynd með hlutverkaskiptum, en hópar geta breyst ennþá. Gott væri að þeir sem geta útvegað viðeigandi klæðnað, komi með hann sem fyrst í skólann. Nemendur þurfa nú að æfa hlutverk sín heima og læra rullurnar sínar.
- Stærðfræðikönnun úr kaflanum um mælingar verður lögð fyrir á mánudag hjá þeim sem ekki hafa nú þegar lokið henni.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








