Vikuáætlun 16. - 20. febrúar
13.02.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Þetta er málið lesbók bls. 97-103, Málrækt 1, 3 bls., stafsetning, ritun og hljóðlestur.
Stærðfræði: Stika 1b – Nemendabók, horn bls. 10-13 Mælingar, ásamt æfingahefti.
Samfélagsfræði: Ísland - veröld til að njóta, lokið við vinnubók bls. 16-55.
Náttúrufræði: Lífríkið í sjó bls. 14 – 17.
Enska: Days, Months and Seasons.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan og samskipti. Við fáum líka námskeið í skyndihjálp sem átti að vera í síðustu viku.
Tilkynningar:
- Á mánudag er bolludagur/maskadagur og er hefð fyrir því að þeir nemendur sem vilja komi í maskabúningum í skólann. Maskaball verður hjá 4. – 5. bekk kl. 10:20 – 11:00 og er vopnabann, venju samkvæmt. Að sjálfsögðu er leyft að koma með bollur í nesti þennan dag
Sundið fellur niður og munum við hafa notalega stund í stofunni okkar í staðinn. - Á þriðjudag / sprengidag er starfsdagur kennara og engin kennsla.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








