Vikuáætlun 15. - 19. desember
12.12.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
15. – 19. desember
- Þá er komið að síðustu vikunni fyrir jólafrí en það hefst kl. 12 föstudaginn 19. desember. Kennsla hefst aftur þriðjudaginn 6. janúar samkvæmt stundaskrá.
Föstudaginn 19. desember eru litlu-jólin . Þá er skólatími frá kl. 9:00 - 12:00 og fer strætó kl. 8:40 úr Firðinum og Hnífsdal og aftur heim kl. 12.15. Dægradvöl opnar kl. 12.
- · Á litlu-jólin mæta allir prúðbúnir í bekkjarstofuna þar sem við munum eiga góða stund saman, við ætlum að vera í jólaskapi og spila litlu-jólabingó, hlusta á jólasögu, borða jólasmákökur og drekka gos eða safa, syngja jólalög, skiptast á jólapökkum og förum á jólaball. Jóla hvað ;) Þennan dag má koma með jólasmákökur og gos/safa í nesti.
- · Sú hefð hefur myndast í skólanum að á litlu jólunum skiptast nemendur á jólapökkum. Pakkarnir mega ekki kosta meira en 500 kr. og þurfa að henta bæði strákum og stelpum. Koma þarf með 1 stk. pakka í skólann í síðasta lagi þriðjudaginn 16. desember.
Viðfangsefni vikunnar :
Íslenska: Byrjendalæsi; Unnið verður með ljóðið Jólasveinakvæði eftir Jóhannes úr Kötlum og fleiri texta tengda jólum.
Stærðfræði: Sproti 1b; nemendabók bls. 45 -47 og aukabækur. Tölurnar 1 – 20
Samfélagsfræði: Aðventan og jólaundirbúningur
Lífsleikni: Aðventustund.
Tónmennt: Jólalög.
Myndmennt: Jólaföndur
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist.
Heimanám :
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Mikilvægt er að allir lesi reglulega heima í jólafríinu svo börnunum fari ekki aftur í lestrinum.
Sögubókin: Farin í jólafrí.
Bestu jólakveðjur
Helga og Árný








