Vikuáætlun 13. - 17. febrúar
09.02.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
13. - 17. febrúar 2012
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Stafainnlögn Gg. Það er leikur að læra, lesbók bls. 60 - 61. Það er leikur að læra vinnubók 2 bls. 10 - 11. Skriftaræfingar.
Stærðfræði: Spoti 1b bls. 48 – 51. Tölurnar 11 – 20 í reiknisbók og aukabækur.
Náttúrufræði: Vatn – Hvaða dýr lifa í vatni?.
Samfélagsfræði: Leyniboxið. Uppbyggingarstjarnan - notkun. Leikræn tjáning. Val á milli stofa.
Tákn með tali: Búð, kaupa, peningar, budda/peningaveski.
Auk þessa fara nemendur í sund, leikfimi, útivist, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Gg saga í sögubók og 2 blaðsíður (merktar) í Sprota æfingahefti. Sögubókin verður í töskunni á mánudag og henni á að skila miðvikudaginn 15. febrúar. Sproti æfingahefti verður í töskunni á miðvikudag og honum á að skila föstudaginn 17. febrúar. Í Sprotabókina má vinna meira ef þau vilja. Lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku. |
Leyniboxið er komið af stað. Það er bara einn í einu með það í hvorum bekk. Á hann að koma með það í skólann daginn eftir. Leiðbeiningar eru utan á boxinu.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








