Vikuáætlun 13. - 17. apríl 2015
10.04.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Læsi til náms – verkefni ásamt vinnubókum. Unnið út frá orðatiltækjum og málsháttum, samþætt við samfélagsfræðina. Ljóðið Vorperla eftir Halldór Kristjánsson lært utanbókar.
Stærðfræði: Stika 1b – Nemendabók 6. kafli, Almenn brot. Þeir sem ná að klára kaflann taka könnun að honum loknum.
Samfélagsfræði: Víkingaöld árin 800-1050, bls. 14 – 27. Kortaverkefni og víkingaskip, samþætt við íslensku.
Náttúrufræði: Lífríkið í sjó – Landgrunn og úthöf bls. 40-56.
Enska: Feelings.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan – sáttaborð, klípusögur ásamt bekkjarfundi.
Tilkynningar:
- Á mánudaginn mun bókasafnsfræðingur kynna fyrir okkur rithöfundana Áslaugu Jónsdóttur og Kristínu Steinsdóttur.
- Í þessari viku verða skipti í hringekju og fara nemendur nú í síðustu hópa vetrarins.
- Nú erum við að fara að ljúka við kaflann um almenn brot í stærðfræðinni og taka nemendur könnun úr honum jafnóðum.
- Í þessari viku lærum við ljóðið ,,Vorperla“ eftir Halldór Kristjánsson utanbókar. Þetta er síðasta ljóðið sem þarf að læra í vetur.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








