Vikuáætlun 13. - 17. apríl
10.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkjar
13. – 17. maí
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Unnið á ýmsan hátt með íslenska fugla í framhaldi af bókinni Mábbi 1.
Stærðfræði: Sproti 2b nemendabók bls. 108 – 119 ásamt aukabókum.
Túarbragðafræði: Trúarbrögðin okkar: Unnið að hópverkefnum um þau trúarbrögð sem farið hefur verið í.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna 5 – orðabók 3 sinnum yfir vikuna. Stærðfræðiblað, plús og mínus. Íslenska: Hvaða fugla þekkir þú og líkamshlutar fugla. |
Í þessari viku höldum við áfram að fræðast um fugla og verður útivistin flutt á föstudag. Þá ætlum við út að bera kennsl á fugla svo ef einhverjir eiga litlar fuglabækur væri flott ef þeir kæmu með þær til að nota í útivistinni.
Fimmtudaginn 16. maí ætlum við í Náttúrugripasafnið í Bolungarvík, við munum leggja af stað frá skólanum kl. 8:15 (þeir sem ekki eru mættir fyrir þann tíma verða bara að vera við önnur störf í skóla á meðan). Við komum svo aftur í skólann um kl. 11:00. Nemendur mæta með tösku í skólann en þar sem við borðum nesti í Bolungarvík þurfa allir að koma með nesti í bakpoka.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








