Vikuáætlun 13. -17. október
10.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
13.-17.október
- Á föstudag (17.10) og mánudag (20.10) verður vetrarfrí í skólanum og á þriðjudag (21.10) verður starfsdagur kennara og því einnig frí hjá nemendum. Fimm daga frí

- Seinni hluti foreldranámskeiðs er 14. október, sjá nánar í tölvupósti frá aðstoðarskólastjóra.
- Á fimmtudaginn (16.10) er okkur boðið í heimsókn á Eyrarsól.
Viðfangsefni vikunnar:
Íslenska:
Byrjendalæsi; Nn
og Óó. Unnið verður út frá bókinni Skrímslapest
eftir Áslaugu Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal
Stærðfræði:
Sproti 1a, ljúka við bókina og vinna í æfingahefti. Svo verða ýmis reikningsspil.
Lífsleikni: Við byrjum á námsefni í lífsleikni, Vinir Zippýs. Fyrst er talað um tilfinningar, hvernig líður mér?
Tónmennt; „Hvínandi vindur“
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, dans, innileikfimi og útivist
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Sögubókin (val): Stafirnir Nn og Óó
Skrifa sögu þar sem stafirnir Nn og Óó
eru notaðir, teikna og lita mynd við söguna. Skila miðvikudaginn 22. október
Bestu kveðjur
Helga og Árný








