Vikuáætlun 12. - 16. nóvember
08.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur
12. – 16. nóvember
Nú er fyrsta lotan í hringekjunni að baki og búið að skipta um viðfangsefni hjá hópunum. Einnig var bætt við fimmta hópnum þar sem fyrra skipulag var ekki að ganga nógu vel og bættist upplýsingatækni því við hringekjuna. Af þessum sökum er búið að skipta niður í nýja hópa og tryggja það að enginn fari tvisvar í sama fagið.
- Foreldraviðtöl verða á miðvikudaginn 14. nóvember.
Tímasetning viðtala verða send heim mánudaginn 11. nóv.
- Þemadagar verða fimmtudag og föstudag.
Yfirskrift dagana er Saman í liði-allir á iði. Þá þurfa nemendur að vera klæddir til að vera bæði úti og inni. Allir þurfa að hafa með sér nesti í bakpoka og þeir sem eru EKKI í mötuneyti þurfa að hafa mat fyrir fimmtudag eins og vanalega en matarboð verður fyrir alla á föstudaginn.
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Ýmis verkefni tengd Byrjendalæsi, unnið verður með bækurnar Maxímús músíkús , málfræði, stafsetning og ritun.
Stærðfræði: Sproti bls. 78 - 81. Tími og tímaútreikningar
Enska: Travelling.
Náttúrufræði: Þemadagar
Samfélagsfræði: Komdu og skoðaðu sögu mannkyns.
Tónmennt: samsöngur og hlusta á tónlist tengda Maxímús músíkús bókunum.
Heimanám:
Stærðfræði: læra 8 sinnum töfluna
Íslenska bls. 11 – 12 í Skinnu
Nemendur þurfa að lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku og skrifa í
5 orðabók a.m.k. 3sinnum í viku .
Kveðja Helga








