Vikuáætlun 12. - 16. mars
09.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
12. - 16. mars 2012
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Stafainnlögn Xx. Það er leikur að læra, lesbók bls. 70 - 71. Það er leikur að læra vinnubók 2 bls. 20 - 21. Skriftaræfingar.
Stærðfræði: Upprifjun og próf. Aukabækur.
Náttúrufræði: Fjöruferð.
Samfélagsfræði: Leyniboxið. Komdu og skoðaðu land og þjóð bls. 6 – 7. Vinir Zippý´s.
Tákn með tali: Fjara, steinn, sjór og sandur.
Auk þessa fara nemendur í sund, leikfimi, útivist, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Xx saga í sögubók og 2 blaðsíður í stærðfræðibók eða að klára upprifjunarhefti. Sögubókin verður í töskunni á mánudag og henni á að skila miðvikudaginn 14. mars. Stærðfræðibókin á miðvikudag og henni á að skila föstudaginn 16. mars. Lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku. |
Á miðvikudaginn ætlum við í fjöruferð og mælumst við til þess að krakkarnir séu í stígvélum til að koma í veg fyrir blauta fætur. Að öðru leiti klædd eftir veðri eins og alltaf.
Við höfum nú lokið við bækurnar Sprota 1a og 1b og ætlum að hafa könnunarpróf á föstudaginn. Sproti 1b kom heim í töskunni í dag, föstudaginn 9. mars. Þá er hægt að líta yfir þau atriði sem tekin eru fyrir í þessum bókum, hvort þau séu ekki á hreinu. Þetta próf gildir svo 35% af lokaeinkunn í stærðfræði.
Í okkar skóla á yngsta stigi er mældur lestrarhraði 6 sinnum á skólaári. 1. bekkur tekur auðvitað ekki þátt í því framan af en í næstu viku er komið að hraðlestrarprófi og ætlum við að taka stöðuna hjá 1. bekk. Það er enginn sérstakur dagur sem þetta fer fram heldur bara hvað hentar okkur.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








