Vikuáætlun 11. - 15. maí
08.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun
3. bekkur
11. – 15. maí
Byrjendalæsi: Höldum áfram með verkefnið um hringrásir náttúrunnar. Einnig vinnum við ýmis verkefni tengd þessu efni. Unnið verður með orð, lestur, lesskilning, ritun, starfsetningu og skrift.
Stærðfræði: Stefnum niður bls. 111 í Sprota. Þar erum við að vinna með plús, mínus, margföldun og deilingu. Einnig aukabækur þegar við á.
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund, útivist og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Útileikfimin hefst þessa viku og þurfa nemendur því að vera klæddir eftir veðri og íþróttafötin fara í frí.
Á fimmtudaginn er Uppstigningadagur og því frí í skólanum.
Síðasta hraðlestrarpróf vetrarins verður tekið þessa viku.
Kveðja,
Jón Heimir og Magnúsína








