Vikuáætlun 11. - 15. febrúar
08.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
11. - 15. febrúar 2013
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Unnið með bókina Ísland áður fyrr: Heimilið eftir Halldóru Kristinsdóttur og Kristínu Á. Þorsteinsdóttur. Ýmis verkefni unnin samtengd lestri og samfélagsfræði.
Stærðfræði: Sproti 2b nemendabók bls. 30 - 35 ásamt aukabókum.
Kristinfræði: Bls. 71 – 75.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
|
Heimavinna: Lesa heima 5 sinnum yfir vikuna. 5 – orðabók 3 sinnum yfir vikuna. 2 blaðsíður í stærðfræðibók. Vinnublað – fjölskyldan mín skráð á hugtakakort. |
Á mánudaginn 11. febrúar er bolludagur. Þá mega nemendur mæta með bollur í nesti og vera í grímubúningum. Þann dag munum við byrja á því að fara á grímuball og í framhaldi af því munum við halda sameiginlegan skemmtidag með 1., 3. og 4. bekk. Nemendur mega mæta með leikfang sem er ekki stærra en svo að það komist í skólatöskuna.
Á þriðjudaginn 12. febrúar er starfsdagur kennara án nemenda og er þá frí hjá nemendum.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








