Vikuáætlun 10. - 14. nóv.

07.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


10.-14.nóvember


Foreldarviðtöl


Á miðvikudaginn 12. nóvember eru foreldraviðtöl og mæta nemendur með foreldrum/foreldri í viðtal í bekkjarstofunni á þeim tíma sem bókað er. ATH engin kennsla er þennan dag.


 


Þökkum góðar undirtektir með tappasöfunina og okkur vantar fleiri og langar því til að biðja ykkur um að halda áfram að safna töppum.


Viðfangsefni vikunnar:


Íslenska: Byrjendalæsi; unnið með stafina Ei og Ey Bók vikunnar er Litla ljót.


Stærðfræði: Sproti 1b; nemendabók bls. 22– 27 og aukabækur, mælingar og vikudagarnir.


Lífsleikni: Áframhald af eineltisumfjöllun samþætt við Byrjendalæsi og Zippý, kafli 1.4, að vera kvíðinn og óöruggur.
Tónmennt Vikudagarnir og  Það er skemmtilegast að leika sér þegar allir eru með.


Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi, dans og útivist


Heimanám :


Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann.
Sögubókin (val): Stafirnir Ei ei og Ey ey.


Skrifa sögu þar sem stafirnir  Ey ey og Ei ei  eru notaðir, teikna og lita mynd við söguna .

                      Skila mánudagur  17. nóvember


Bestu kveðjur


Helga og Árný