Vikuáætlun 10. - 14. mars
07.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
10-14. mars 2014
Viðfangsefni vikunnar er:
Byrjendalæsi: Við klárum að vinna með bókina Tröllastrákurinn sem gat ekki sofnað eftir Sigríði Arnardóttur. Að því loknu verður stutt verkefni úr Bakkabræðrum. Einnig verður unnið í Ritrún og skrift.
Stærðfræði: Sproti 3b bls. 48-53 og æfingahefti.
Upplýsingatækni: Kennsluforrit inn á nams.is.
Útivist: Skyldi verðarenniferð þessa vikuna eða bara leikir úti.
Auk þessa fara nemendur í leikfimi, útivist, dans, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, upplýsingatækni og heimilisfræði.
Heimavinna: Lesi heima minnst 5x yfir vikuna en best ef þau læsu 7x. |
Bestu kveðjur
Magnúsína og
Maja








