Vikuáætlun 10. - 14. desember
06.12.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur
10. – 14. desember
Jólaföndur; nú er tími jólaföndurs runninn upp og gott að spyrja börnin hvort eitthvað vanti, sumir eru búnir að týna skærunum sínum og vantar e.t.v. lím. Einnig má koma með glimmerliti/lím, límmiða og annað föndurefni sem til er heima í skólann.
Sú hefð hefur myndast í skólanum að á litlu jólunum skiptast nemendur á jólapökkum. Pakkarnir mega ekki kosta meira en 500 kr. og þurfa að henta bæði strákum og stelpum. Það þarf að koma með þá í skólann í síðasta lagi mánudaginn 17. desember.
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Ýmis verkefni tengd Byrjendalæsi, unnið verður með kvæði Jóhannesar úr Kötlum um Jólasveinana, málfræði, stafsetning og ritun.
Stærðfræði: Sproti bls.118 – 123. Samhverfa og mynstur.
Enska: Family. Body parts and Santa Clause
Samfélagsfræði: Fæðing Jesú.
Tónmennt: Jólalög
Jólaföndur, jólakort, jólastuð, jólasöngur, jólagjafir, jóla ...
Heimanám: Seinast heimanámið fyrir jólafrí
Stærðfræðiblað: Jólastærðfræði.
Jólasveinakrossgáta.
Nemendur þurfa að lesa heima a.m.k. 5 sinnum í viku og skrifa í 5 orðabók a.m.k. 3sinnum í viku .
Kveðja Helga








