Vikuáætlun

23.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Ef þið þurfið að ná í okkur vegna fjallgöngunnar:


 


Kristín gsm: 848-2083        Ranný gsm 898-3696


 


 


 


 


Vikan 27.-31. ágúst 2012


 


Miðvikudaginn 29. ágúst förum við í fjallgöngu á Hnífa. Skólatími er frá 8-13. Við ætlum að hjóla inn í fjörð og því verða allir að mæta á hjólum, með hjálm og klædd eftir veðri. Foreldrar eru velkomnir með J  Komið með léttan bakpoka sem inniheldur; staðgott  nesti (hádegisnesti fyrir þá sem ekki eru í mötuneytinu), pennaveski og berjabox. Við leggjum af stað um 9 frá skólanum og stoppum í Tungu-hverfinu og borðum nestið. Við löbbum af stað eitthvað fyrir kl. 10 ef einhverjir foreldrar vilja slást í hópinn þá. Eftir gönguna hjólum við í skólann og borðum hádegismatinn kl. 12.


 



Viðfangsefni vikunnar:


Íslenska: Græni blýantur bls. 2-3, Ritrún 2 bls. 12-13, skrift og lestur.
Stærðfræð i: Upprifjun; hoppa á talnalínu og klukkan. Í undirdjúpum.
Náttúrufræði: Fjallganga.
Samfélagsfræði: Fjallganga.
Lífsleikni: Bekkjarfundur og uppbygging.
Kristinfræði: Fellur niður.
Tónmennt: Lög tengd berjum og hausti.


 




Heimanám:
Lesa heima á hverjum degi og skrifa í 5-orðabók 3 sinnum í viku.
Íslenska:  Skrift 3 eina blaðsíðu.
Stærðfræði: Húrra-hefti 2-3 bls.
                                                                                     Skila fimmtudaginn 30. ágúst



 


 


Bestu kveðjur    Kristín og Ranný