Vikan 9. - 13. september

09.09.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur


9. – 13. september 2013




Á miðvikudag verður skólahlaup í miðlotunni og svo verður skóladagurinn samkvæmt stundaskrá. Hinir dagarnir verða með hefðbundnu sniði.




Í íslensku og stærðfræði höldum við áfram með undirbúning fyrir samræmdu prófin. Við prófum að taka eldri próf (2011 og 2012) í hlutum og þá kynnast nemendur uppsetningu prófsins betur.


 


Nokkrir foreldrar hafa spurt hvernig best sé að undirbúa börn sín heima fyrir og við höfum bent þeim á skólavefinn http://skolavefurinn.is/namsgreinar/islenska-islenska-1-islenska-2-staerdfraedi/profasidan-thjalfun-fyrir-prof   og vef námsmatsstofnunar http://www.namsmat.is/vefur/samr_prof/grunnskolar/410.html .


 


Nemendur fara í aðrar greinar eins og venjulega.


 


Kveðjur                                 
Árný
og Laufey