Vikan 6. - 10. janúar 2014
06.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Gleðilegt nýtt ár!
Þriðjudaginn 7. janúar 2014 hefst kennsla samkvæmt stundaskrá.
Í næstu viku verða stuttar kannanir í íslensku og stærðfræði.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði klárum við veðurverkefnin og byrjum að læra um hafið.
Í samfélagsfræðinni vinnum við með sögur úr Birtunni. Þar er talsvert tekið á félagsfærni.
Í stærðfræðinni vinnum við áfram í Sprota á einstaklingsgrundvelli. Stefnan er að sem flestir hafi lokið fyrri bókinni í lok vikunnar.
Í íslensku vinnum við með ljóðlestur, ýmis ritunarverkefni og byrjendalæsi. Að þessu sinni verður byrjendalæsisverkefnið út frá tilfinningalæsi og við stefnum á að taka slíkt verkefni einu sinni í viku fram að páskum.
Upplýsingatæknin verður samþætt ensku og náttúrufræði.
Svo fara nemendur líka í hringekju, myndmennt, dans, tónmennt, sund, leikfimi og útiveru.
Kveðjur,
Árný og Laufey








