Vikan 5. 9.nóvember
09.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í vikunni sem er að líða hefur miklum tíma verið varið í umræður og vinnu um einelti. Krakkarnir unnu veggspjöld um einelti, hvar það getur átt sér stað og hvernig hægt er að breyta aðstæðum þannig að allt leiki í lyndi. Hluta af spjöldunum fóru þeir með út í bæ og fengu að hengja þau upp á mismunandi stöðum þar sem þau verða fólki til ánægju og áminningar í nokkurn tíma. Þeim var alls staðar vel tekið og ber að þakka það. Önnur spjöld prýða veggi skólans og tilvalið er að skoða þau þegar komið verður í foreldraviðtölin í næstu viku.








