Vikan 4. - 8. febrúar
01.02.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
4. febrúar – 8. febrúar
Í þessari viku tökum við fyrir eftirfarandi:
Íslenska: Upprifjun og ýmis verkefni.
Stærðfræði: Æfingahefti, tugir, plús og mínus.
Samfélagsfræði: Bærinn okkar.
Náttúrufræði: Umhverfið.
Tónmennt: Þorraþræll.
Öxar við ána.
Lífsleikni: Skírnin.
Einnig förum við í íþróttir, dans og tæknimennt.
Heimavinna
Lestur daglega.
Sögubókin er í fríi þessa vikuna. Í stað hennar fá nemendur stærðfræðiverkefni til þess að glíma við heima. Skila á fimmtudag.
Miðvikudaginn 6. febrúar eru foreldraviðtöl. Þá er ekki hefðbundinn skóladagur en nemendur eiga að mæta með foreldrum í viðtal til umsjónarkennara. Nemendur hafa fengið í hendur miða með tímasetningum viðtala.
Bestu kveðjur,
Inga Sigga og Jón Heimir








