Vikan 4.- 8. mars
01.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Mánudaginn 4. mars er bekkjarmyndataka. Sjá nánar auglýsing sem er í heimanámsmöppunni.
Krakkarnir í 4. bekk eru að fara að gera grashaus náttúrufræði sem útbúið er úr nælonsokkum. Ég er búna að fá nokkra sokka en okkur vantar enn fleiri gamla og ónýta nælonsokka eða nælonsokkabuxur í skólann, ef einhver lumar á slíku væri það vel þegið. Það má alveg vera lykkjuföll og göt og liturinn skiptir engu máli.
Okkur vatnar líka litla krukku undir grashausinn okkar 1. stk. á mann.
Nú eru bara 3 vikur í árshátíð GÍ og í dag fóru krakkarnir heim með óskalista fyrir búninga í töskunni. Vinsamlega kíkið á hann. ATH ég ætlast ekki til að þið kaupið búninga, notið bara það sem til er heima eða fáið lánað hjá vinum og ættingjum. Við eigum líka eitthvað í búningageymslunni.
Viðfangsefni vikunnar:
Íslenska: Ýmis verkefni tengd Byrjendalæsi, æfingar fyrir árshátíð , málfræði, stafsetning og ritun.
Stærðfræði: Sproti 4B bls. 44 - 52 margföldun og deiling, mælingar og tugabrot.
Samfélagsfræði: Líf í köldu landi
Tónmennt: æfing fyrir árshátíð
Enska: animals
Lífsleikni: Bekkjarfundur og árshátíðarundirbúningur
Náttúrufræði: grashaus
Heimanám:
Stærðfræði: Margföldunarblað
Íslenska: Skinna 1. Bls.
Lesa heima daglega og skrifa í 5 orðabókina a.m.k. 3 sinnum í viku. Reynið að finna orð sem ykkur finnst skrítin eða skiljið ekki.
Kveðja Helga








