Vikan 31.mars - 4.apríl
28.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

- Árshátíðin okkar verður fimmtudaginn 3.apríl og föstudaginn 4.apríl – þá daga falla allar sérgreinar niður.
- Krakkarnir sýna fjórar sýningar. Þrjár á fimmtudegi og eina á föstudegi.
- Fimmtudaginn 3.apríl er mæting í skólann að venju klukkan 8:00, með pennaveski, lestrarbók og nesti.
- Föstudaginn 4.apríl er mæting klukkan 9:00 og nemendur fara heim að lokinni sýningu, um 11:00.
- Krakkarnir sýna nú í fyrsta sinn að kvöldi til á fimmtudegi sem hefst kl. 20:00. Nemendur mæta í kennslustofuna sína klukkan 19:15. Eftir að þau eru búin að sýna ætlum við að hafa það notalegt í stofunni og spila saman. Krakkarnir mega hafa með sér drykk og snakk eða popp og endilega koma með spil að heiman ef þau geta.








