Vikan 28. nóv. - 2. desember
25.11.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
28. nóvember – 2. desember 2011
Viðfangsefni vikunnar er:
Íslenska: Stafainnlögn Pp. Það er leikur að læra, lesbók bls. 40 - 41. Það er leikur að læra vinnubók bls. 30 - 31. Skriftaræfingar.
Stærðfræði: Sproti 1b bls. 2 – 17. Æfingahefti.
Náttúrufræði: Kýrin.
Samfélagsfræði: Aðventustund. Vinir Zippýs. Aðgát í umferðinni bls. 12 – 13.
Auk þessa fara nemendur í sund, leikfimi, útivist, textílmennt, tæknimennt, myndmennt, kristinfræði, upplýsingatækni, tónmennt og tákn með tali.
|
Heimavinna: P saga í sögubók. Heimavinnan verður í töskunni á mánudag og henni á að skila
|
Við munum fljótlega byrja á jólaföndri og því væri gott að athuga með lím, skæri, liti og fleira sem á að vera til staðar. Margir eru t.d. búnir með límið sitt.
Við munum nota auglýsingabæklinga til að útbúa jólaskraut fyrir stofuna okkar og vantar okkur því nokkra frá hverju barni.
Vinsamlegast athugið með endurskinsmerki hjá börnunum ykkar því að það er svo mikið myrkur þessa dagana. Gott er að hafa þau bæði á úlpum og töskum.
Bestu kveðjur
Kristín og Magnúsína








