Vikan 27. - 31. ágúst 2012
24.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Ekki málið lesbók bls. 7, Vilborg Dagbjartsdóttir og vb. bls. 2-4 málfræði
Stærðfræði: Stika 2a Nemendabók bls. 6-10 Tugakerfið.
Enska: Action bls. 4-5, Fortune telling ásamt vinnubók.
Samfélagsfræði: Sögueyjan 1 bls. 5-26 Ísland byggist fólki.
Náttúrufræði: Fjallganga og bókin Lífríkið á landi kynnt.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan
Tilkynningar:
- Á miðvikudaginn förum við í fjallgöngu. Nemendur mæta upp á Seljalandsdal við gönguskíðaskálann kl. 9:00 með gott nesti í bakpoka. Þeir sem eru í mötuneytinu koma með einfalt nesti en aðrir tvöfalt. Gott væri að hafa einnig berjabox í pokanum. Gengið verður á Sandfell og eru foreldrar og aðrir fjölskyldumeðlimir sem geta velkomnir með. Allir þurfa að verða sér úti um far uppeftir, en við göngum alla leið til baka um hádegisbilið.
- Sundhöllin verður lokuð í næstu viku og til 9. september. Á meðan verður kennd útileikfimi í staðinn fyrir sund.
- Leikfimin verður kennd utan dyra til 1. október.
- Nemendur eiga að lesa heima á hverjum degi og draga efnið saman í 2-3 setningar (mega vera fleiri) sem þau skrifa í viðeigandi stílabók. Mjög gott er að allir hafi lestrarvasa með rennilás fyrir lestrarbókina, stílabókina og lestrarmiðann sem kvittað er á.
Bestu kveðjur
Auður og Helga








