Vikan 26. - 30. nóv.
23.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
26. nóvember – 30. nóvember
Í þessari viku tökum við fyrir eftirfarandi:
Íslenska: Stafainnlögn Bb og Jj.
Stærðfræði: Sproti 1b – samlagning.
Samfélagsfræði: Jóladagatal og aðventustund.
Náttúrufræði: Sjónarhorn.
Tónmennt: Guttavísur.
Lífsleikni: Þarfastjarnan.
Einnig förum við í íþróttir, dans og tæknimennt.
Heimavinna
Lestur daglega.
Sögubókin: Stafirnir Bb og Ææ. Skrifa og búa til sögu . Skila á fimmtudag.
Foreldrar eru beðnir að aðstoða börn sín við að finna orð með B og J í umhverfinu. Eiga einhverjir í fjölskyldunni þessa stafi í nafninu sínu?








