Vikan 18. mars - 22. mars

15.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur


18. mars – 22. mars


 


Í þessari viku tökum við fyrir eftirfarandi:  


 


Íslenska:             Ýmisleg verkefnavinna.


Stærðfræði:             Verkefni útbúin af kennurum.


Samfélagsfræði:               Undirbúningur fyrir árshátíð.


Náttúrufræði:          Vatn, verkefni 4.


Tónmennt:                      Undirbúningur fyrir árshátíð.


Lífsleikni:            Undirbúningur fyrir árshátíð.


Myndmennt:              Páskaföndur.


 


Einnig förum við í íþróttir.        



Heimavinna


Lestur daglega.


 



 


Dagskrá árshátíðar hefur verið send heim, sjá einnig heimasíðu GÍ.


 


Á fimmtudag og föstudag verður mötuneytið lokað og ekki verður heldur boðið upp á hafragraut. Nemendur þurfa þess vegna að hafa með sér tvöfalt nesti þessa daga.


 


Við ætlum að halda bekkjarpartý í síðustu lotunni á föstudag og mega nemendur þá hafa með sér nammi eða snakk (í hófi) og gos eða fernudrykk ásamt tvöfalda nestinu.


 


Að lokum minnum við á litríku bolina.   Þá þurfum við að fá í skólann eigi síðar en á mánudaginn. Börnin taka svo bolina með sér heim eftir sýningu á föstudaginn.












 
   

 


 


Bestu kveðjur, og gleðilega páska.


Inga Sigga og Jón Heimir