Vikan 18.- 22. mars
14.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur
Árshátíð GÍ 2013
Árshátíð GÍ verður haldin 21. og 22. mars. Krakkarnir í 4. bekk sýna sitt atriði tvisvar sinnum, fimmtudaginn 21. mars og föstudaginn 22. mars og hefjast báðar sýningarnar stundvíslega kl. 9:00. Nánari upplýsingar er að finna í tölvupósti frá Olgu.
Páskafrí hefst mánudaginn 25. mars en nemendur eiga að mæta aftur til starfa miðvikudaginn 3.apríl samkvæmt stundaskrá.
Mánudag, þriðjudag og miðvikudag: Hefðbundin kennsla ásamt æfingum fyrir árshátíð.
Á fimmtudag er skóli frá kl. 8-13 og sýnir 4. bekkur kl. 9 á árshátíðinni og verðum síðan inn í stofu að vinna. Þennan dag þarf að koma með tvöfalt nesti þar sem salurinn er upptekin vegna árshátíðarinnar.
Á föstudag
er skóli frá kl. 8-13. 4. bekkur sýnir kl. 9 og síðan horfum við á sýninguna. Þennan dag eru foreldrar 4. bekkjar sérstaklega velkomnir á sýningu. Eftir sýninguna ætlum við síðan að skella upp bekkjarskemmtun og panta pizzu og þeir sem vilja fá pizzu þurfa að koma með
500
kr. fyrir þriðjudag
. Þeir sem taka þátt í pizzuveislunni þurfa því aðeins að koma með einfalt nesti þennan dag. Það má líka koma með fernudrykk eða gos og smá nammi.
Viðfangsefni vikunnar:
Íslenska: Ýmis verkefni tengd Byrjendalæsi og æfingar fyrir árshátíð.
Stærðfræði: Sproti 4B bls. 56- 58, mælingar og tugabrot.
Árshátíðarundirbúningur.
Heimanám:
Stærðfræði: Stærðfræðiblað
Íslenska: Skinna 2 bls.
Lesa heima daglega og skrifa í 5 orðabókina a.m.k. 3 sinnum í viku. Reynið að finna orð sem ykkur finnst skrítin eða skiljið ekki.
Kveðja Helga








