Vikan 17. - 21. september
14.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska
: Ekki málið - Lesbók bls. 17-19 Þór, Hymir jötunn og Miðgarðsormur.
Málfræði vb. 9-11. Ljóðabókin mín bls. 2 Frá fyrri tíð.
Stærðfræði: Stika 2a Nemendabók bls. 20-23 Tugakerfið.
Enska: Action bls. 4-15, Fortune telling ásamt vinnubók bls. 4-14.
Samfélagsfræði: Sögueyjan 1 bls. 35-41, Siglingar og landafundir.
Náttúrufræði: Lífríkið á landi, - Á byggðu bóli og myndband.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan – jákvæð samskipti.
Upplýsingatækni: Ritvinnsla í Word.
Tónmennt: Tónlist í tengslum við Evrópska tungumáladaginn.
Tilkynningar:
- Þann 5. september hófst verkefnið Göngum í skólann og stendur það yfir til 3. október. Markmið verkefnisins eru að hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.
- Þriðjudaginn 18. september bjóðum við foreldrum til haustfundar þar sem umsjónarkennarar fara yfir vetrarstarfið. Auk þeirra munu skólaráðgjafi, aðstoðarskólastjóri og fulltrúi VáVest hópsins vera með stutt innlegg.
Fundurinn verður í dansstofu skólans kl. 18:00-19:00 og gengið inn frá Aðalstræti.
- Í næstu viku hefst tveggja vikna lestrarlota. Þá mun starfsfólk og nemendur skólans verja a.m.k. 15 mínútum á dag í hljóðlestur.
|
Heimanám: Nemendur eiga að lesa heima daglega og draga efnið saman í 2-3 setningar (mega vera fleiri) sem þau skrifa í viðeigandi stílabók. |
Bestu kveðjur
Auður og Helga








