Vikan 14.-18. janúar
11.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
14. janúar – 18. janúar
Í þessari viku tökum við fyrir eftirfarandi:
Íslenska: Stafainnlögn Hh og Íí.
Stærðfræði: Sproti 1b – Tölur.
Samfélagsfræði: Aðgát í umferðinni.
Náttúrufræði: Viðfangsefni okkar þessa vikuna verður að
skoða muninn á;Dagur, vika, mánuður, ár,
áratugur og öld. Svo höldum við áfram að skoða
árstíðirnar.
Tónmennt: Janúar, ferbrúar....
Sunnudagur, mánudagur...
Þorraþræll.
Kristinfræði: Undrið 8.viðfangsefni.
Lífsleikni: Eineltishringurinn
Einnig förum við í íþróttir, dans og tæknimennt.
Heimavinna
Lestur daglega.
Sögubókin: Stafirnir Hh og Íí. Skrifa og búa til sögu . Skila á fimmtudag.
Foreldrar eru beðnir að aðstoða börn sín við að finna orð með H og Í í umhverfinu. Eiga einhverjir í fjölskyldunni þessa stafi í nafninu sínu?
Í þessari viku tökum við fyrir kvæðið „Þorraþræll“. Lykilorð vikunnar er hríðarbylur og í tengslum við það lærum við stafina Hh og Íí. Markmiðið er að nemendur læri hljóð og heiti bókstafanna og dragi rétt til þeirra. Í tengslum við þetta verkefni ætlum við að vinna með veður og orð sem tengjast veðri og veðráttu, búa til hugtakakort og dótasögu.
Bestu kveðjur,
Inga Sigga og Jón Heimir








