Vikan 13. - 17. janúar
09.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
13.-17. Janúar
Annaskil: Þann 17. janúar líkur haustönn og vorönn hefst formlega
20. janúar.
Það er ekkert formelgt námsmat í 1. bekk eins og hjá eldri krökkunum á annaskilum en þó munum við hafa smá stærðfræðikönnun í næstu viku þar sem við erum að ljúka Sprota 1.b og langar að sjá hvar börnin standa til að geta byggt ofan á þekkingu þeirra og/eða unnið betur með ákveðna þætti.
Foreldraviðtöl verða síðan 6. febrúar og frekari upplýsingar um þau koma þegar nær dregur.
Viðfangsefni vikunnar
Íslenska: Byrjendalæsi; H og Í Unnið verður með ljóðið Þorraþræll eftir Kristján Jónsson fjallaskáld
Stærðfræði: Sproti 1b; Ljúka við nemendahefti. Form og myndir.
Náttúrufræði:
Rannsókn á vatni.
Samfélagsfræði: Að sjást í umferðinni.
Lífsleikni: Vinna við bekkjarsáttmála
Tónmennt: „Nú er frost á Fróni“ Þorraþræll.
Myndmennt: Frost og snjór.
Auk þess fara þau í; heimilisfræði, handavinnu, smíði, sund, innileikfimi og dans.
Heimanám :
Heimalestur: Börnin eru með lestrarbók og lestrarmiða í plastvasanum og lesa daglega fyrir foreldra sem síðan kvitta fyrir á lestrarmiðann. Ef lestrarbækurnar klárast þá má finna bók heima til að lesa.
Sögubókin: Stafirnir H og Í
Skrifa sögu þar sem stafirnir H og Í
eru notaðir,
teikna og lita mynd við söguna .
Skila sögubók mánudaginn 20. janúar.
Bestu kveðjur
Helga og Kristín








