Vikan 11. mars - 15. mars
08.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 1. bekkur
11. mars – 15. mars
Í þessari viku tökum við fyrir eftirfarandi:
Íslenska: Bókin „Splass“ tekin til lestrar og umfjöllunar og ýmis verkefni unnin í tengslum við vatn.
Stærðfræði: Upprifjun og könnunarpróf úr Sprota 1a og 1b.
Samfélagsfræði: Undirbúningur fyrir árshátíð.
Náttúrufræði: Vatn, verkefni 3.
Tónmennt: Undirbúningur fyrir árshátíð.
Lífsleikni: Undirbúningur fyrir árshátíð.
Einnig förum við í íþróttir, dans og tæknimennt.
Heimavinna
Lestur daglega.
Sögubókin: Teikna mynd og skrifa stutta sögu þar sem vatn kemur fyrir í einni eða annarri mynd og æfa sig að lesa hana.
Eins og flestir vita verður árshátíðin okkar 21. og 22. mars n.k. og er undirbúningur fyrir árshátíðina í fullum gangi hjá okkur. Í tengslum við atriðið okkar þurfum við að biðja ykkur um að hjálpa börnunum að æfa sig á að syngja Guttavísur. Einnig viljum við biðja um að hvert barn komi með bol. Allir litir nema svart, hvítt og grátt ganga.
Í næstu viku ætlum við líka að taka könnunarpróf í stærðfræði. Bækurnar fá þau heim í næstu viku og ættu því að geta gluggað aðeins í þær fyrir prófið.
Bestu kveðjur,
Inga Sigga og Jón Heimir








