Vikan 11.- 15. mars
08.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 4. bekkur
Myndataka sem vera átti sl. mánudag frestast um óákveðinn tíma þar sem mikil forföll voru í bekknum þann dag.
Nú eru bara 2 vikur í árshátíð GÍ sem verður 21. og 22. mars og því mun skólastarfið að stórum hluta snúast um árshátíðarundirbúning. En auðvita kíkjum við líka í skólabækurnar. Vinsamlega látið mig vita tímanlega ef nemendur verða í leyfi árshátíðadagana þar sem allir hafa sitt hlutverki í árshátíðarleikritinu og mikilvægt að geta mannað forföll tímanlega.
Viðfangsefni vikunnar:
Íslenska: Ýmis verkefni tengd Byrjendalæsi, æfingar fyrir árshátíð , málfræði, stafsetning og ritun.
Stærðfræði: Sproti 4B bls. 48 -56, mælingar og tugabrot.
Samfélagsfræði: Líf í köldu landi, lífshættir og siðir inúíta.
Tónmennt: æfing fyrir árshátíð
Enska: fruits
Lífsleikni: Bekkjarfundur og árshátíðarundirbúningur
Náttúrufræði: æfing fyrir árshátíð og umhirða grashausanna.
Heimanám:
Stærðfræði: Margföldunarblað
Íslenska: Stafsetning, skrifa upp textann í stílabók með tengiskrift og passa að allt sé rétt skrifað.
Lesa heima daglega og skrifa í 5 orðabókina a.m.k. 3 sinnum í viku. Reynið að finna orð sem ykkur finnst skrítin eða skiljið ekki.
Kveðja Helga








