Verðlaun fræðslunefndar

27.10.2022 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í morgun kom Finney Rakel Árnadóttir, formaður fræðslunefndar Ísafjarðarbæjar ásamt fríðu föruneyti og veitti skólanum verðlaun fyrir framúrskarandi skólaumhverfi. Verðlaunin voru veitt vegna verkefnisins Útistærðfræði á unglingastigi,  en heiðurinn að því verkefni eiga stærðfræðikennararnir Berglind Árnadóttir, Bryndís Bjarnason, Harpa Henrýsdóttir, Jón Hálfdán Pétursson og Katrín Sif Kristbjörnsdóttir.


Haustið 2021 fóru stærðfræðikennarar í GÍ á námskeið um útikennslu og eftir það var ákveðið að hafa útistærðfræði vikulega í unglingadeildinni veturinn 21-22. Hugmyndin byggir á því að nemendur fái aðgengileg verkefni sem tengjast nærumhverfinu og krefjast þess að hugsað sé á stærðfræðilegan hátt svo hægt sé að leysa þau. Kennarar sáu miklar breytingar á viðhorfi nemenda til stærðfræðinnar og margir sáu loksins gleðina og gagnið í stærðfræðinámi svo ákveðið hefur verið að halda þessu áfram núna veturinn 22-23.


Auk þessa verkefnis hlaut Grunnskóli Önundarfjarðar viðurkenningu fyrir verkefnið Brú milli skólastiga - samstarf leik- og grunnskóla og óskum við þeim innilega til hamingju.