Velkomin í skólann
22.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Umsjónarkennarar 9. bekkjar í vetur eru Herdís M. Hübner og Monica Mackintosh. Bókleg kennsla fer að mestu fram í stofum 201, 202 og 203, sem eru á efri hæð gamla gagnfræðaskólans - á sama gangi og krakkarnir voru í 8. bekk í fyrra.
Ýmsar breytingar hafa orðið frá fyrra vetri, árganginum er nú kennt í tveimur hópum í flestum greinum, en þó er þrískipt í stærðfræði og hluta af íslenskutímunum. Einnig hefur orðið sú breyting að nemendur geyma ekki námsbækurnar sínar í skólanum lengur, heldur eiga ávallt að fara með þær heim. Það kallar á svolítið skipulag af þeirra hálfu og þau þurfa að gæta þess á kvöldin að allt sé tilbúið fyrir daginn eftir; allar bækur í töskunni sem þarf að nota næsta dag. Við biðjum foreldra að fylgjast með þessu og aðstoða börn sín eftir þörfum.
Fljótlega verður farið í hinar hefðbundnu fjallgöngur eins og ávallt á haustin. Ekki er alveg orðið ljóst hvenær það verður, en trúlega í næstu eða þar næstu viku, þ.e. fyrir 6. sept. 9. bekkur gengur frá Seljalandsdal yfir Þjófaskörð og niður Hnífsdal.
Haustfundur fyrir foreldra verður líka haldinn mjög fljótlega. Nánari upplýsingar sendar um leið og þær liggja fyrir.
Við notum Mentor í síauknum mæli og það er mikilvægt fyrir foreldra að hafa aðgang að Mentor. Við biðjum ykkur endilega að hafa samband við okkur umsjónarkennarana ef ykkur vantar aðgangsorð.
Foreldrar eru einnig hvattir til að fylgjast með heimasíðu skólans, grisa.isafjordur.is








